|
Post by 2020litlabaun on May 30, 2019 22:34:35 GMT
Sælar Hvaða vítamín eruð þið að taka inn á meðgöngunni? Sjálf er ég að að taka D, B12 og fólínsýru en þetta er fyrsta meðgangan mín og ég er ekki viss hvort ég eigi að bæta einhverjum fleiri vítamínum við.
|
|
|
Vítamín
May 31, 2019 8:23:00 GMT
via mobile
Post by Admin on May 31, 2019 8:23:00 GMT
Ég tek d vítamín og fólín sýru með smá b12. Alveg hægt að taka t.d. járn og þannig en ég hef ekki lagt í það.
|
|
|
Post by bumbulina on May 31, 2019 9:02:58 GMT
Ég tók fjölvítamínblöndu sem heitir "Með barni" alla síðustu meðgöngu. Ég byrjaði á því sama núna en af því að flökurleikinn er verri núna en síðast ætla ég að skipta og taka bara D vítamín og fólínsýru. Það er það eina sem heilbrigðisstarfsfólk mælir með að taka sérstaklega, nema þegar líður á meðgönguna þurfa margar að taka auka járn.
|
|
|
Vítamín
May 31, 2019 9:10:15 GMT
via mobile
Post by janbumba on May 31, 2019 9:10:15 GMT
Ég er að taka fólínsýru, lýsi og b6. B6 er nú aðallega tekið í þeirri von að það bæli ógleðina.
|
|
|
Vítamín
Jun 2, 2019 0:02:59 GMT
via mobile
Post by loksins2020 on Jun 2, 2019 0:02:59 GMT
Ég er að taka pregnacare, omega, d vítamín dropa og svo hef ég lengi tekið floravital því ég er með lágan járnbúskap.
|
|
|
Vítamín
Jun 2, 2019 9:15:13 GMT
via mobile
Post by Bumbubaun on Jun 2, 2019 9:15:13 GMT
Var að taka pregnacare & Omega 3 en var buin að vera með rosalega slæma ógleði sem versnaði enn meira eftir að ég tók vítamínin svo ég skipti yfir í fólín & B6 og er búin að skánna helling 😊 en ætla skipta aftur yfir þegar ógleðin er hætt veit að það er ekki nauðsyn en hef bara alltaf tekið fjölvítamín og vil halda því áfram 😊
|
|
|
Vítamín
Jun 3, 2019 18:27:48 GMT
via mobile
Post by Mymiracle2020 on Jun 3, 2019 18:27:48 GMT
Ég tek inn pregnacare, d vitamin sprey & omega 3 😊
|
|