|
Post by janbumba on Jun 3, 2019 19:31:20 GMT
Sælar Eru fleiri hér sem eru í þeim sporum að vera með ofurógleði ? Ég virðist ekki halda neinu sem þarf að tyggja niðru og átti metdag í síðustu viku þar sem ég kastaði upp 10 sinnum. Fór upp á deild í dag og mældist bæði þurr og vannærð. Fékk tvo poka af vökva, ógleðislyf og b vítamín í æð. Var svo send heim með tvær tegundir af ógleðislyfjum og á að koma og fá vökva aftur á fimmtudaginn. Bjarta hliðin er þó að ég er best á morgnanna og næ að halda vítamínunum niðri. En vá eftir fimm vikur af ælu er ég að bugast
|
|
|
Post by Admin on Jun 3, 2019 21:22:51 GMT
Úff en ömurlegt! Nei ég er ekki svona slæm en var mun verri á fyrri meðgöngu og var næstum farin að ofþorna þar sem ég átti svo erfitt með að koma niður vökva. Er skárri núna. Vona að lyfin hjálpi og ekki hika við að leita þér aðstoðar eða taka veikindaleyfi!
|
|
|
Post by bumbulina on Jun 4, 2019 9:20:16 GMT
Úff, þetta hljómar hræðilega! Heitir þetta ekki eitthvað ákveðið, svona rosaleg meðgönguógleði? Mig minnir að breska hertogaynjan hafi þjáðst að því sama samkvæmt einhverri frétt. Vonandi virka lyfin fyrir þig.
|
|
|
Post by Admin on Jun 4, 2019 10:27:38 GMT
Úff, þetta hljómar hræðilega! Heitir þetta ekki eitthvað ákveðið, svona rosaleg meðgönguógleði? Mig minnir að breska hertogaynjan hafi þjáðst að því sama samkvæmt einhverri frétt. Vonandi virka lyfin fyrir þig. held þú sért að tala um hyperemesis gravidarium (ofur-æla á meðgöngu, haha) Það er sjaldgæft en alveg hrikalegt! Kannast við eina konu sem var þannig.
|
|
|
Post by janbumba on Jun 4, 2019 13:53:35 GMT
Takk stelpur, ég er alla vega aðeins hressari eftir að hafa fengið vökvann í gær. Ógleðin er þó ekkert minni þrátt fyrir lyfin en vonandi kemur þetta. Get nefnilega eiginlega ekki tekið mér frí frá vinnu þar sem ég er þá launalaus eftir tvo veikindadaga og enginn til að leysa mig af, starfa sem dagforeldri, en það styttist sem betur fer í sumarfrí.
|
|
|
Post by Bumbubaun on Jun 4, 2019 18:54:59 GMT
Takk stelpur, ég er alla vega aðeins hressari eftir að hafa fengið vökvann í gær. Ógleðin er þó ekkert minni þrátt fyrir lyfin en vonandi kemur þetta. Get nefnilega eiginlega ekki tekið mér frí frá vinnu þar sem ég er þá launalaus eftir tvo veikindadaga og enginn til að leysa mig af, starfa sem dagforeldri, en það styttist sem betur fer í sumarfrí. má ég forvitnast hvað lyfin heita?
|
|
|
Post by Bumbubaun on Jun 4, 2019 18:57:09 GMT
Já ég er með svakalega mikla ógleði en er aðeins að skánna . hef ælt mikið og ekkert funkerað ! ekki getað æft eða mætt i vinnu 😭 höndla þetta mjög ílla og græt oft 💩 var verst á milli 5 & 7 viku en er buin að fá 2 góða daga núna komin 8 vikur.
Var gefin lyf en ég sef bara og er rugluð á þeim.
|
|
|
Post by janbumba on Jun 4, 2019 19:14:50 GMT
Já ég er með svakalega mikla ógleði en er aðeins að skánna . hef ælt mikið og ekkert funkerað ! ekki getað æft eða mætt i vinnu 😭 höndla þetta mjög ílla og græt oft 💩 var verst á milli 5 & 7 viku en er buin að fá 2 góða daga núna komin 8 vikur. Var gefin lyf en ég sef bara og er rugluð á þeim. Mæli með að þú fáir að kíkja aftur til þeirra á kvennadeildinni og fáir vökva ef þú ert þurr. Hvaða óvleðislyf fékkstu. Ég fékk phenergan sem ég tek á kvöldin fyrir svefn. Var sett á það á síðustu meðgöngu en gat þá ekki haldið mér vakandi svo nú var ákveðið að það fengi ég bara á kvöldin en svo fékk ég afipran til að taka á daginn, má taka það mest 3 sinnum á dag. En risa knús til þín. Þetta tekur svo svakalega á.
|
|
|
Post by Bumbubaun on Jun 4, 2019 19:34:48 GMT
Já ég er með svakalega mikla ógleði en er aðeins að skánna . hef ælt mikið og ekkert funkerað ! ekki getað æft eða mætt i vinnu 😭 höndla þetta mjög ílla og græt oft 💩 var verst á milli 5 & 7 viku en er buin að fá 2 góða daga núna komin 8 vikur. Var gefin lyf en ég sef bara og er rugluð á þeim. Mæli með að þú fáir að kíkja aftur til þeirra á kvennadeildinni og fáir vökva ef þú ert þurr. Hvaða óvleðislyf fékkstu. Ég fékk phenergan sem ég tek á kvöldin fyrir svefn. Var sett á það á síðustu meðgöngu en gat þá ekki haldið mér vakandi svo nú var ákveðið að það fengi ég bara á kvöldin en svo fékk ég afipran til að taka á daginn, má taka það mest 3 sinnum á dag. En risa knús til þín. Þetta tekur svo svakalega á. Var fyrst látin taka postafen sem gerði ekkert nema gera mig sljóa og meiri óglatt en fékk siðan afipran sem ég rotast bara à 😑 búin að reyna öll trix - sjoveikisarmbönd,allskonar engifer,sítrónu,piparmyntu,preggiepops,neyða mig að borða reglulega en ekkert virðist virka. skipti út vítamínum í b6 & fólín gerði örlítið gagn en ekki mikið. vona bara að þetta verði ekki alla meðgönguna :/ get ekki mikið meir. og já tek þau fyrir svefninn er rugluð allan faginn ef ég tek þau pg sef mjög lengi.. sem er ekki málið með önnur börn a heimilinu sem þarf að koma í skóla ofl. maðurinn minn hefur þurft að skreppa úr vinnu til að skutlast.
|
|
|
Post by janbumba on Jun 5, 2019 12:51:44 GMT
Vá Bumbubaun, vildi að ég ætti einhver ráð fyrir þig. Vonandi gengur ógleðistímabilið fljótlega yfir, þetta er auðvitað ömurlegt að heyra. Knús til þín og baráttukveðjur.
|
|
|
Post by Admin on Jun 5, 2019 13:03:10 GMT
leitt að heyra að ykkur líður svona illa. Ég var líka mjög slæm á fyrri meðgöngu en varð strax skárri þegar ég var komin 10 vikur - vona það fyrir ykkur! Ógleðin hélt samt áfram heillengi en þá gat ég byrjað að funkera miklu meira.
|
|