Ég lít svo feitt út fyrir að vera ólétt! Sérstaklega á kvöldin eftir mat. Ég er grönn svo þetta lítur út eins og óléttubumba en ekki bara smá mjúkur magi. Frænka mín bara sá á mér að ég væri ólétt. Mér er alveg sama þó að hún viti en ég ætlaði ekki að segja frá í vinnunni fyrr en eftir 12 vikur. Veit ekki alveg hvernig ég get reynt að klæða þetta af mér! Er bara komin 9 og hálfa!
já! ég er strax farin að sjá bumbu á mér komin rúmlega átta vikur. Á seinustu meðgöngu þá sást varla á mér á 20 viku! En ég klæði bumbuna bara af mér, í víðum skyrtum-peysum-bolum sem hjálpar mér að fela bumbuna og forðast að vera í þröngum fötum.
Er nú ekkert komin með bumbu en finn þó mjög vel hvar legið er þar sem það er svo framarlega. Ég er samt svo há og grönn að það sér yfirleitt frekar seint á mér.
Já!! ég er sko komin með bumbu.. er ekki að trúa því samt og er alltaf að telja mér trú um að ég sé bara að ýminda mér að ég sé með bumbu haha. Ég er komin 9 vikur á morgun en ég er einmitt í bullandi vandræðum með að fela bumbuna í vinnunni. Víðir kjólar og peysur eru samt bestu vinir mínir núna
Já ég er sko með bumbu en tel þetta vera hormónabumba sem er algengt á fyrstu vikunum, vinnufötin fela þetta sem betur fer vel og eg klæði hana af mér i boðum og svona er bara endanlaust útblásin 😅 8vikur.
Ég er með rosalega hormónabumbum (ég held það sé bara loft/uppþemba sem myndast vegna þessara hormóna...), fékk hana nánast við getnað báðar meðgöngurnar mínar. A.m.k. tvær manneskjur sáu að ég var ólétt sömu viku og barnið varð til. Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að ég segi frá óléttunni strax eftir snemmsónarinn, ég á bara ekki séns að fela bumbuna.
Èg er ađ detta ì 8 vikurnar.. er misjöfn eftir dögum. En suma daga er èg svo ùtþanin ađ èg er à viđ 20vikna meďgöngu.. haha En klæđi þađ bara af mèr. Nànast enginn sem veit ennþá.