|
Post by Bumbubaun on Jun 4, 2019 18:45:51 GMT
Núna er svo langt síðan seinast að ég man ekki eftir fyrsta tímanhm hvað er aftur gert? 🤔🤔🤔
|
|
|
Post by bumbulina on Jun 4, 2019 19:23:55 GMT
Þú hringir í þína heilsugæslu, gerir það bara strax, og biður um fyrsta tíma í mæðraskoðun. Þá (a.m.k. í Reykjavík) ertu skráð á lista hjá ljósmóður sem hringir í þig við fyrsta tækifæri og þið finnið saman tíma í mæðrskoðun. Ég fór báðar mínar meðgöngur í fyrsta tíma gengin u.þ.b. 10 vikur en ég hef heyrt að stundum sé það seinna.
|
|
|
Post by bumbulina on Jun 4, 2019 19:26:13 GMT
Eða meinarðu hvað er gert í tímanum sjálfum? Þú ert spurð ýmissa heilsufarslegra spurninga, svolítið eins og í yfirheyrslu, þú ert vigtuð, þarft að pissa og stigsa þvagið og svo blóðþrýsingurinn tekinn. Sumar ljósmæður reyna að hlusta á hjartslátt fóstursins en það er svona happaglappa hvort hann heyrist svona snemma. Man ekki eftir öðru.
|
|
|
Post by Bumbubaun on Jun 4, 2019 19:38:07 GMT
já komin með tíma var að spá i hvað er gert,takk 😊
|
|
|
Post by Admin on Jun 6, 2019 11:20:04 GMT
Ég var í mínum fyrsta og þetta er kannski smá mismunandi milli heilsugæsla, en þetta var bara spjall og svo tekinn blóðþrýstingur og smá stunga í puttann til að skoða járnið. Svo fékk ég bara þvagprufuglas til að koma með í næsta skipti. Eins gott - ég var nýbúin að pissa og hefði örugglega ekki getað aftur!
|
|
|
Post by loksins2020 on Jun 18, 2019 22:17:27 GMT
Fór í morgun og fékk óvæntan sónar með. Sáum litlu baun sprikla á fullu, snúa sér og baða út útlimum, greinilega nóg pláss 😁
En já þetta var bara heilsufars spurningar, láta mig fá beiðnir fyrir blóðprufu og þvagprufutékki og svona.
|
|
|
Post by bumbi2020 on Jun 24, 2019 20:54:25 GMT
Mig kvíðir fyrir fer á morgun er í mikilli yfirþyngd og hrædd að stiga á vigtina
|
|
|
Post by bumbulina on Jun 25, 2019 9:19:19 GMT
Mig kvíðir fyrir fer á morgun er í mikilli yfirþyngd og hrædd að stiga á vigtina Þú átt að geta beðið um að fá ekki að vita þyngdina. Ljósmóðirin lætur þig þá bara vita ef það verður óeðlileg þyngdaraukning milli tíma sem krefst nánari skoðunar (gæti t.d. bent til meðgöngueitrunar eða -sykursýki).
|
|