|
Post by 2020litlabaun on Jul 20, 2019 18:53:18 GMT
Sælar, því miður þá fengum við að vita fyrir nokkrum dögum þegar við mættum í 12 vikna sónarinn að litla baunin okkar væri ekki með hjartslátt og hefði líklega látist í kringum 7-8 viku. Þetta var mikill skellur fyrir okkur þar sem við vorum búin að sjá hjartsláttinn í snemmsónarnum í júní en skilst að fósturlát séu mun algengari en maður heldur. Ég fer í útskröpun í næstu viku og verður fóstrið sent til meinafræðings til að rannsaka hvort þetta sé ófullkomin blöðruþungun. Ég er orðin pínu kvíðin fyrir þessari útskröpun. Hefur einhver hér upplifað fósturmissi og hefur einhver ráð fyrir mig?
|
|
|
Post by Januar on Jul 23, 2019 10:08:11 GMT
Æ, leiðinlegt að heyra ég missti 2015 (var einmitt engin einkenni 6vikur eftir að hjartsláttur fór). Fyrst valdi ég að nota lyfið en það myndi ég aldrei gera aftur. Lyfið leiddi til þess að mér blæddi oft helling í 2vikur svo mikið einu sinni að ég var lögð inn vegna blóðmissis og loksins sett í útskaf. Útskafið var svo ekkert mál (sérstaklega miðað við hitt) en ég var mjög slöpp eftir á (vegna fyrri blóðmissis aðallega) svo myndi gera ráð fyrir að gera lítið 2daga á eftir. En svo var ég nokkuð lengi að jafna mig andlega á missinum Gangi þér vel!
|
|