|
Einkenni
May 8, 2019 11:00:55 GMT
via mobile
Post by Admin on May 8, 2019 11:00:55 GMT
Eruð þið komnar með einhver einkenni? Fyrstu vikuna fór meltingin hjá mér alveg í rugl og núna finn ég að ógleðin er að byrja. Vona að hún verði ekki mjög slæm en á sama tíma fagna ég einkennum - svo skrítinn þessi fyrsti tími á meðgöngunni, engin bumba eða spörk, erfitt að trúa að þetta sé satt!
|
|
|
Einkenni
May 8, 2019 13:27:15 GMT
via mobile
Post by janbumba on May 8, 2019 13:27:15 GMT
Ég hef aðalega fundið fyrir mikilli þreytu og mikinn mun á úthaldi í ræktinni, hef ekki alveg sama kraft og áður. Meltingin reyndar líka í rugli en sorbitol hjálpar. Ógleðin er samt byrjuð og ég fékk martröð í nótt um grænmetisgratínið sem ég eldaði í gær í kvöldmatinn. Var nefnilega svo óglatt eftir að ég borðaði það að ég endaði á að kasta upp seinna um kvöldið. Það er afgangur inni í ísskáp, ætlaði ekki að geta opnað hann í morgun.
|
|
|
Einkenni
May 8, 2019 21:11:43 GMT
via mobile
Post by Bumbubaun on May 8, 2019 21:11:43 GMT
Ég fattaði að ég væri ólétt vegna mikilla oþæginda i brjóstunum,hormónabumbu og mikilla "togverkja" bara stuttu eftir getnað 😅 fékk lika jakvætt 3v2d 😱 en er aðalega rosalega þreytt og smá flökurt.. húðin hræðinleg og skapið útum allt,4 barn og vanalega ekki fundið svona snemma fyrir þessu 🤷♀️ komin bara 4 vikur. farin að hræðast tvibba 🤣🤣🤣
p.s ja lika endanlaust svöng og matarlystin úr öllu valdi - er vanalega alveg öfugt.
|
|
|
Einkenni
May 8, 2019 21:51:59 GMT
via mobile
Post by Admin on May 8, 2019 21:51:59 GMT
Vá það er svakalega snemmt bumbubaun! Og haha úff tvíburar með 3 börn fyrir hljómar eins og áskorun! Vonandi kemur í ljós fljótlega hvað baunirnar eru margar. Og leiðinlegt með gratínið - hversu týpískt ólétt samt, að fá martröð um grænmeti!
|
|
|
Post by bumbulina on May 9, 2019 13:11:00 GMT
Þetta er mín önnur meðganga og fyrstu einkennin er gjörólík! Ég fékk reyndar bumbu á við 3 mánaða bumbu nánast strax við getnað, það gerðist líka síðast. Svo ég reyni að halda bumbunni inni þegar ég fer út úr húsi, er komin svo stutt á leið :/ Er annars bara pínu þreytt og með óvenju mikla löngun í nammi, finn ekki fyrir öðru. Og jú, ég á erfitt með að sofna, er pínu kvíðin eins og ég varð alltaf þegar ég var að byrja á blæðingum, það er einhver hormónaviðkvæmni í mér Ég vona að þetta haldist bara svona næstu tvo mánuði, það væri næs Síðast leið mér eins og ég væri með heiftarlega flensu strax á 3. eða 4.viku, var alltaf að frjósa (eiginmaðurinn keypti dúnsæng handa mér um hásumar ) og var svo þreytt að ég hefði getað sofnað standandi! Og úff, Bumbubaun, ég vona að þetta versni ekki hjá þér! Ömurlegt að fá svona mikil einkenni strax!
|
|
|
Einkenni
May 9, 2019 14:41:49 GMT
via mobile
Post by jankrilid on May 9, 2019 14:41:49 GMT
Ég er aðallega bara þanin, er að fá svaka hormónabumbu ;P er nottla komin svo stutt, geri ráð fyrir meiri einkennum upp úr 6 vikunum.
|
|
|
Post by Mymiracle2020 on May 9, 2019 18:14:42 GMT
Ég er bara endalaust pissandi og með smá velgju. Byrjaði reyndar í morgun að finna óþægindi í brjóstunum.
Mannig líður pínu eins og maður sé ekki ólétt hehe.
|
|
|
Post by Admin on May 14, 2019 13:54:53 GMT
Ugh ógleðin er orðin verri. Langar helst bara heim og undir sæng en ekki hanga í vinnunni. Ætla samt að spara veikindadaga þangað til ég er verri. Vorkenni mér bara haha
|
|
|
Einkenni
May 14, 2019 19:00:54 GMT
via mobile
Post by Bumbubaun on May 14, 2019 19:00:54 GMT
Ugh ógleðin er orðin verri. Langar helst bara heim og undir sæng en ekki hanga í vinnunni. Ætla samt að spara veikindadaga þangað til ég er verri. Vorkenni mér bara haha Skil þig vel,hef verið að vakna slæm og fengið velgjur 1x ælt en veit að það ee verra framundan ! er stressuð fyrir vinnuni eimitt 😅
|
|
|
Post by bumbukrili on May 16, 2019 13:04:20 GMT
Ég komst ekki að því að ég væri ólétt fyrren ég fór í krabbameinsskoðun hjá lækni þá komin tæplega 6 vikur en var búin að vera með það sem ég héllt að væru túrverkir. Ég á einn 20 mánaða strák og á ekki að geta orðið ólétt sjálf svo þetta var velkomið en óvænt <3 við vorum farin að plana næstu uppsetningu svo þetta er bara aðeins á undan áætlun <3 Ég er aðalega bara þreytt, illt í brjóstunum og með velgju allan daginn. Er komin 7 vikur sléttar í dag.
|
|
|
Post by EG on May 20, 2019 12:24:40 GMT
Þreytan er svakaleg hjá mér og ég pissa endalaust.. er reyndar líka mjög dugleg að drekka vatn. Grunaði að ég væri ólétt fyrst útaf brjóstunum varð mjög aum í þeim strax á 4 viku. En engin ógleði hér (sjö, níu, þrettán) og vonandi kemur hún ekki Er komin 7 vikur dag
|
|
|
Post by EG on May 20, 2019 16:05:38 GMT
Eitt sem ég reyndar gleymdi.. hef verið að fá svona "túrverki" frekar reglulega. Hefur einhver annar verið að fá svoleiðis? Hefur samt ekkert blætt með þeim.
|
|
|
Post by Admin on May 20, 2019 16:39:32 GMT
ég fékk smá svona togverki bara fyrstu vikuna eða svo, hef ekkert fengið síðan
|
|
|
Einkenni
May 21, 2019 9:07:17 GMT
via mobile
Post by Bumbubaun on May 21, 2019 9:07:17 GMT
Eitt sem ég reyndar gleymdi.. hef verið að fá svona "túrverki" frekar reglulega. Hefur einhver annar verið að fá svoleiðis? Hefur samt ekkert blætt með þeim. Heita togverkir og er legið að stækka og eru mjög eðlilegir svo lengi sem þeir eru ekki obæranlegir og ekki blæðir ❤
|
|
|
Post by EG on May 21, 2019 14:27:06 GMT
Okei takk fyrir svörin ❤
|
|