|
Post by saehestur on May 22, 2019 23:39:14 GMT
Hæhæ
Var bara ađ rekast á ykkur.. Er komin ca 6 vikur og á tìma ì snemmsònar eftir helgi. Þetta var òvænt og erum viđ mis spennt.. enda smà sjokk.. hehe
En mig langađi ađ spurja þiđ sem eruđ bùnar eđa á leiđ í snemmsònar, takiđ þiđ kallana međ?
Minn var à báđum áttum međ hvort hann ætti eithvađ aď koma.. held bara ađ þetta verđi kannski raunverulegra ef hann sèr þetta á skjánum hjà kvennsa.
|
|
|
Post by bumbulina on May 23, 2019 8:27:40 GMT
Ég tók hann ekki með síðast, datt það einhvern veginn ekki í hug því mér fannst ég bara vera á leið í venjulega heimsókn til kvennsjúkdómalæknis. En upplifunin var slík að ég hefði viljað hafa hann með núna til leyfa honum að upplifa það líka, hann kemst bara ekki. Ég mæli alveg með að taka hann með, ef hann vill koma, það er alveg magnað að sjá svona litla baun með hjartslátt. Snemmsónarinn gerði þetta a.m.k. allt miklu raunverulegra fyrir mér með mitt fyrsta barn, (það á eftir að koma í ljóst hvernig ég upplifi þetta núna með mitt annað) og maðurinn minn hefur nefnt að þetta varð fyrst raunverulegt fyrir hann þegar ég hringdi í hann, æsispennt, strax eftir á og lýsti þessu fyrir honum.
|
|
|
Post by Admin on May 23, 2019 10:01:19 GMT
Ég tek minn með í allt Sérstaklega sónar
|
|
|
Post by janbumba on May 23, 2019 10:34:30 GMT
Minn ætlar að koma með og mér finnst sjálfri betra að hafa hann með.
|
|
|
Post by bumbulina on May 23, 2019 10:44:18 GMT
Munið stelpur að taka síma (snjallsíma) með í snemmsónar. Sumar stöðvar eru hættar að prenta út sónarmyndir, í staðinn fær maður að taka mynd af skjánum.
|
|
|
Post by Admin on May 23, 2019 13:48:40 GMT
Munið stelpur að taka síma (snjallsíma) með í snemmsónar. Sumar stöðvar eru hættar að prenta út sónarmyndir, í staðinn fær maður að taka mynd af skjánum. Já ókei! Gott tips! ég fékk allavega útprentaða tók samt strax mynd af henni því svona sónarmyndir endast ekkert endalaust
|
|
|
Post by jankrilid on May 23, 2019 16:23:10 GMT
Ég gat ekki beðið lengur og flýtti tímanum, krílið leit vel út með hjartað á fullu 🥰 og já maðurinn minn fór með, hann hefur jafn gaman og ég að sjá barnið sitt í sónar ☺️
|
|
|
Post by janbumba on May 23, 2019 18:26:46 GMT
Ég fór í snemmsónar í dag. Það leit allt vel út og yndislegt að fá að sjá hjartsláttinn. Hún sem skoðaði mig vildi þó meina að ég væri komin lengra og að egglos hafi átt sér fyrr stað og samkvæmt hennar útreikningum er ég sett 29. desember. Það er spurning hvort ég sé þá gjaldgeng hér inni. Væri til í að fá að bíða með ganga úr grúbbunni þar til ég er búin í 12 vikna sónar svona ef þetta skildi ekki alveg stemma.
|
|
|
Post by saehestur on May 23, 2019 18:27:05 GMT
Hefur einhver ykkar fariđ ì sònar hjá Guđmundi Arasyni ì lækningu? Er ađ spá hvort mađur fái mynd eđa meigi taka mynd af skjánum?
|
|
|
Post by Admin on May 23, 2019 18:54:22 GMT
Ég fór í snemmsónar í dag. Það leit allt vel út og yndislegt að fá að sjá hjartsláttinn. Hún sem skoðaði mig vildi þó meina að ég væri komin lengra og að egglos hafi átt sér fyrr stað og samkvæmt hennar útreikningum er ég sett 29. desember. Það er spurning hvort ég sé þá gjaldgeng hér inni. Væri til í að fá að bíða með ganga úr grúbbunni þar til ég er búin í 12 vikna sónar svona ef þetta skildi ekki alveg stemma. Þessar dagsetningar eru alveg sveigjanlegar- ég er t.d. sett 3 jan og er líka að fylgjast með desember hóp
|
|
|
Post by janbumba on May 23, 2019 19:43:29 GMT
Takk, gott að vita
|
|
|
Post by Bumbubaun on May 24, 2019 9:45:28 GMT
minn hefur alltaf komið í alla sónara og mun koma núna líka 😊 Enþá 6 dagar í minn sónar 😱 guð já myndi halda mig í báðum var sett 2.jan með fyrsta barn og var líka i des hóp
|
|
|
Post by Bumbubaun on May 24, 2019 10:49:14 GMT
Hefur einhver ykkar fariđ ì sònar hjá Guđmundi Arasyni ì lækningu? Er ađ spá hvort mađur fái mynd eđa meigi taka mynd af skjánum? Hef ekki farið til hans en minn kvennsi er hjá lækningu og hann prentar út þannig myndi ekki buast við öðru en það se gert! hann prentar alltaf út lika í venjulegri heimsókn en er að vísu með pcos 🤷♀️
|
|
|
Post by klementina on May 26, 2019 13:42:34 GMT
Fór í snemmsónar í vikunni, en var komin aðeins of stutt til að það heyrðist hjartsláttur :/ Bý út á landi og þessvegna er ég ekki viss um að ég fari aftur fyrr en í 12vikna. Svoldið svekkjandi, kvennsi sagði að ef ég hefði komið nokkrum sólarhringum seinna þá hefði heyrst :S Ég misreiknaði tíðarhringinn um ca 4 daga. En annars leit svosem allt vel út
|
|
|
Post by saehestur on May 27, 2019 18:27:47 GMT
Fór ì snemmsònar ì dag og sá þennan fìna hjartslátt komin 6 vikur og 4 daga. Fèkk svo rosa fìna mynd af lìtilli baun😊
|
|