|
Post by Admin on May 17, 2019 11:06:15 GMT
Búin í snemmsónar - allt leit vel út og við heyrðum hjartsláttinn! Núna get ég vonandi slakað aðeins á og farið að segja nánasta fólkinu
|
|
|
Post by janbumba on May 17, 2019 12:08:41 GMT
Yndislegt að heyra að allt gekk vel <3 Ég get ekki beðið eftir að fara í snemmsónar, svona spennt stressuð. Kemst þó ekki hjá því að segja mínum nánustu áður eins og mömmu og pabba því ég verð svo fáránlega slæm alltaf af þessari ógleði.
|
|
|
Post by bumbulina on May 17, 2019 12:12:52 GMT
Dásamlegt, heppin ertu! Ég fer í næstu viku og ætla þá að segja frá. Get ekki beðið! Og hlakka til að þurfa ekki að halda bumbunni inni í hvert sinn sem ég fer út, ég er nú þegar búin að fá nokkrar beinar og óbeinar spurningar um hvort ég sé nokkuð ólétt...
|
|
|
Post by bumbukrili on May 17, 2019 13:28:33 GMT
Æðislegt! innilega til hamingju! við erum búin að fara 2x í sónar og alltaf jafn yndislegt að heyra hjartsláttinn <3
|
|
|
Post by Mymiracle2020 on May 17, 2019 16:36:13 GMT
Jiii yndislegt að heyra!
Get ekki beðið eftir að fara. A ekki tima fyrren i byrjun júní.
|
|
|
Post by 2020litlabaun on May 17, 2019 17:06:01 GMT
En æðislegt, til hamingju! Ég á ekki tíma fyrr en 13.júní, svo langt þangað til..
|
|
|
Post by jankrilid on May 17, 2019 17:29:07 GMT
Frábært! Ég fer eftir viku, er mjög stressuð með þetta þar sem ég missti fóstur í mars, hrædd um að sónarinn sýni það sama og síðst :/
|
|
|
Post by Admin on May 17, 2019 17:37:54 GMT
Haha já ég get nefnilega ekki beðið mikið lengur með að segja - þigg alveg smá hjálp núna með stelpuna út af ógleðinni. Gangi ykkur vel sem eigið eftir að fara - þetta getur verið stressandi en flestar fá góðar fréttir
|
|
|
Post by Bumbubaun on May 17, 2019 19:14:52 GMT
Jii hvað ég öfunda þig ❤ hlýtur að hafa verið mikill léttir,minn er eftir tæpar 2 vikur - get ekki beðið stressuð en á sama tíma spennt. finnst þetta enþá smà óraunverulegt 😅
|
|
|
Post by Mymiracle2020 on May 20, 2019 11:28:57 GMT
Snemmsónarinum mínum var flýtt! 🥰🥰 Fer á eftir, a mjög erfitt með að bíða.
Það byrjaði að blæða smá í gærkvöldi þannig mömmuhjartað varð svo hrætt. Krossa fingur og tær að kruttið mitt var bara að stríða❤
|
|
|
Post by janbumba on May 20, 2019 11:53:48 GMT
Gott að honum var flýtt, aldrei gott að vera í einhverri óvissu. Vona að allt gangi vel hjá ykkur í snemmsónarnum ♡
|
|
|
Post by Admin on May 20, 2019 12:08:41 GMT
já gott að fá svör, vonandi er allt í góðu
|
|
|
Post by Mymiracle2020 on May 21, 2019 8:45:58 GMT
Elsku krilið mitt var bara að stríða! Það er i góðu með það & sá hjartslattinn❤
|
|
|
Post by Admin on May 21, 2019 9:03:28 GMT
Elsku krilið mitt var bara að stríða! Það er i góðu með það & sá hjartslattinn❤ Æði frábærar fréttir!
|
|
|
Post by janbumba on May 21, 2019 9:11:46 GMT
Yndislegt að heyra ♡
|
|