|
Ógleðin
May 21, 2019 9:14:17 GMT
via mobile
Post by Bumbubaun on May 21, 2019 9:14:17 GMT
Eru þið með eh ráð sem virka fyrir ykkur?
Nú hef ég alltaf farið nánast daglega i ræktina en fyrir 5 dögum byrjaði ógleðin að vera óbærinleg er líka með svima.Líður alls ekki vel og finnst mér það mjög erfitt að treysta mér ekki að fara 😭 Ég veit um mörg ráð við ógleði en ekkert virkar (langversta meðgöngu ógleði sem ég hef fengið - fjórða meðganga) er líka buin að missa úr vinnu þar sem ég fúnkera nánast ekki😱😭 kv ein uppgefin #væluþráður
|
|
|
Post by bumbulina on May 21, 2019 11:30:52 GMT
Æj, veit ekki hvort ég get eitthvað hjálpa, ég varð aldrei mjög slæm síðast og finn lítið fyrir ógleði núna. Fyrir mig skipti mestu máli að vera aaalltaf að nasla í eitthvað yfir daginn, fá mér líka bita áður en ég settist upp í rúminu á morgnana. Líka að passa að það fari alltaf vel um mig þegar ég sit, í góðri stöðu fyrir bak og háls svo það myndist engin spenna í vöðvunum þar. Og hitt var að passa að þreytast ekki mikið, alltaf leggja höfuðið niður ef ég gat þegar ég fann fyrir þreytu.
Hvað svimann varðar gætirðu þurft að drekka meira.
|
|
|
Ógleðin
May 21, 2019 14:28:46 GMT
via mobile
Post by janbumba on May 21, 2019 14:28:46 GMT
Átt alla mína samúð. Ég kannast nefnilega vel við þetta. Gerði tilraun til að fara í ræktina um þarsíðustu helgi og eftir 10 mín upphitun á bretti sem ég þrjóskaðist við endaði ég ælandi inni á klósetti og við ákváðum að slaufa ræktinni bara á meðan ég er svona. Mitt fjórða barn og ég var svona alla fyrstu meðgönguna en á hinum tveim lagaðist ógleðin í kringum 14 viku. Á frekar erfitt með vinnuna á meðan þessu varir enda fylgir bæði eldamennska og bleiuskipti mínu starfi og öll matar og bara vond lykt gerir útaf við mig. Á samt yndislegan kærasta sem sér um allt sem viðkemur heimilinu í augnablikinu og kaupir fyrir mig það sem ég get hugsað mér að borða. Á því miður engin töfraráð fyrir þig. Er sjálf búin að prófa preggy pops, b6, borða reglulega og var prófað að setja mig á phenergan á síðustu meðgöngu sem jú hjálpaði með ógleðina en gerði það að verkum að ég gat ekki haldið mér vakandi. Hjálpar mest þessa dagana að fá mér annað hvort kíví eða appelsínu þegar mér er orðið of óglatt og get ekki hugsað mer neitt. Það sem heldur mér gangandi er bara stuðningurinn og hjálpin frá öllum í kringum mig og svo auðvitað það að ég á ekki eftir nema 30 daga í vinnunni en þá kemst ég í sumarfrí.
|
|
|
Post by bumbulina on May 22, 2019 10:52:31 GMT
Ég mundi allt í einu eftir nokkrum í síðasta bumbuhóp sem voru viðkvæmar fyrir járni. Þ.a. ef þú ert að taka einhver fjölvítamín geturðu prófað að skipta þeim út fyrir járnlaus vítamín.
|
|
|
Post by Admin on May 22, 2019 12:15:30 GMT
Ég var hrikaleg af ógleðinni á síðustu meðgöngu. Eina sem dugði var að hvíla mig bara andsk nógu mikið. Og svo borða það sem ég gat mögulega komið ofan í mig. Þegar ég var verst var það eina sem ég kom ofan í mig frosinn eplasafi.
Hingað til hef ég verið aðeins skárri, veit ekki hvort það þýðir bara að það versta er eftir! En vika 8-9 voru verstar síðast. En hinsvegar er ég miklu orkulausari. Er að reyna að muna að þetta er bara tímabundið, borða það sem ég get og svo bara upp í rúm um leið og stelpan mín sofnar.
|
|